top of page
Lalli ljósastaur
epub.png

Hlaða niður rafbók á ePub eða mobi (Kindle) formi:

mobi.png

Lalli ljósastaur

Útgáfuár:

1992

Höfundur:

Þorgrímur Þráinsson

Hvað gerir ellefu ára gamall krakki sem lengist skyndilega og verður rúmlega þrír metrar á hæð? Jú, hann öskrar, og verður dauðskelkaður og telur sig vera að dreyma. En hann er ekki að dreyma! Það er hræðilega erfitt að vera svona stór í þessum heimi því skór númer 48 og risaföt eru varla til. Og svo eru húsin of lítil! Vinir Lalla, Fanney, Davíð, Moni og Hulda hjálpast að við að finna út hvað gerðist en samt vill Moni ekki að Lalli minnki aftur því hann vill selja hann sem körfuboltamann til Bandaríkjanna! Moni öfundar Lalla alveg rosalega því hann verður heimsfrægur! En hvers vegna varð Lalli næstum því eins hár og ljósastaur? Getur verið að Galdra, gamla nornin í Sigluvík, sé að hefna sín á krökkunum? Búa virkilega álfar í stóra steininum? Myndi Lalli minnka aftur ef hann skilaði hestinum sem er týndur? Ætlar Moni líka að reyna að lengjast? Unglingabækur Þorgríms Þráinssonar hafa allar orðið metsölubækur og hlaut höfundurinn barna- og unglinga-bókaverðlaun Skólamálaráðs árið 1990 fyrir bókina Tár, bros og takkaskór. Lalli ljósastaur höfðar til fólks á öllum aldri!

bottom of page