top of page
Undir 4 augu
epub.png

Hlaða niður rafbók á ePub eða mobi (Kindle) formi:

mobi.png

Undir 4 augu

Útgáfuár:

2004

Höfundur:

Þorgrímur Þráinsson

Undir 4 augu er saga um fjórtán ára ungmenni sem eru bundin tryggðarböndum en eiga erfitt með að fóta sig á hálu svelli unglingsáranna. Jóel fórnar landsliðinu til að geta heimsótt föður sinn í Kína þar sem hann lendir í miklum ævintýrum og lífsháska. Álfhildur og Tommi stinga saman nefjum á Akureyri og Tinna er send í skyndi til Lonson. Vinirnir þrá nærveru hvers annars en margt fer öðruvísi en ætlað er. Undir 4 augu er sjálfstætt framhald metsölubókarinna Svalasta 7an sem kom út árið 2003 og fékk góðar viðtökur. Undir 4 augu er nítjánda bók verðlaunahöfundarins Þorgríms Þráinssonar en bækur hans hafa notið mikilla vinsælda. Margt býr í myrkrinu og Nóttin lifnar við voru valdar bestu barnabækur síðustu aldar í kosningu sem Bókasamband Íslands stóð fyrir 1999

bottom of page